Carita-Snyrting var stofnuð árið 2002 og var fyrstu þrjú árin til húsa að Miðvangi
41 í Hafnarfirði. Um mitt ár 2005 flutti stofan í eigið húsnæði að Dalshrauni 11
þar sem hún er starfrækt í dag.
Á stofunni starfa að meðaltali sex starfsmenn og bjóðum við fyrsta flokks þjónustu
á sviði almennrar snyrtingar, fótaaðgerða, förðunar, naglaásetningar og fegrunartattoo.
Góð fagþekking og metnaður okkar tryggir viðskiptavinum stofunnar bestu mögulegu
þjónustu í rólegu og fallegu umhverfi.
Markmið okkar á Carita-Snyrting er að veita afburðaþjónustu, vinna af fagmennsku
í hvívetna og hlúa að góðu orðspori stofunnar. Markmið stofunnar endurspeglast í
orðum okkar ,,fegurð af fagmennsku´´.
Við vekjum athygli á að fullum trúnaði er heitið við meðferðir og þá ráðgjöf sem
við veitum þér.
Carita-Snyrting notar vörur frá [comfort zone], ítalskar hágæðavörur sem uppfylla
ströngustu skilyrði um gæði og vellíðan. Við erum einnig söluaðili Clinique og OPI
og veitum faglega ráðgjöf.
Verið velkomin !