©Carita - Snyrting • Dalshrauni 11 •  220 Hafnarfirði • s: 555-4250 • carita@carita.is

Heim

GYÐJUGLEÐI

Gyðjugleði Carita-Snyrting, Hress Heilsurækt og Siggu & Timo 7.apríl 2011

Fjórar galvaskar athafnakonur þær Ása Karín ráðgjafi hjá Capacent, Linda framkvæmdastjóri Hress, Málmfríður eigandi Carita-Snyrting og Sigga gullsmiður hjá Siggu & Timo ákváðu að gera sér glaðan dag og halda gleði fyrir galvaskar gyðjur.

Það mættu um 450 konur á Sjónarhól á Gyðjugleðina en gleði, gæfa og gæsahúð voru merki kvöldsins.  


Mikill vinkonukærleikur var á svæðinu þar sem þröngt var setið og fjölbreytt flóra af konum á hverju borði. Gengið var útfrá orðunur ,,Gæfan fylgi þér".


Gyðjugleðjandi magadansarar frá danshópnum Gordjöss dönsuðu við mikil fagnaðarlæti og síðan var hvunndagshetja heiðruð. Það var hún Hallfríður Reynisdóttir en hún er gift Guðjóni formanni MND félagsins sem greindist með MND sjúkdóminn árið 2004. Á bak við sterkan mann er sterk kona og það er hún Halla.


Við erum allar hvunndagshetjur og eigum skilið klapp á bakið en það var gaman og gott að klappa henni á bakið því hún hefur gengið í gegnum svo margt. Kristín Einarsdóttir yfir iðjuþjálfi Háskóla sjúkrahúss flutt erindi um Höllu og hennar mann og gerði það með húmor og virðingu við þeirra aðstæðum svo vel að það táraðist allur salurinn. Halla og hennar fjölskylda eiga örugglega 450 nýjar vinkonur sem eru til í að klappa þeim á bakið í framtíðinni.

Halla fékk góðar dekur gjafir, árskort í Hress, gjafaöskju og dekurdag á Caritu, glæsilegt skart frá Siggu & Timo, gjöf frá fræinu í Fjarðarkaupum, nuddtíma frá nuddheimum og fleira. Þegar konurnar fóru heim fengu þær gjafapoka og góð orð um að gæfan fylgdi þeim. Í pokanum var gloss og hreinsilína frá Clinique og Caritu, Corny og tyggjó frá Innnes, sódavatn frá klettavatni, silfurhreinsiklútur frá Siggu og Timo, vikupassi í Hress, 1000 króna gjafakort í Caritu og dömubindi frá Secue Fit.


Ólafur Þórisson ljósmyndari tók myndirnar.